Lýsa (Merlangius merlangus)

Lýsa er botnlægur þorskfiskur eins og þorskur og ýsa, en smávaxnari. Hrygning fer eingöngu fram á litlu dýpi (30–60 m) og er aðalhrygningarsvæði hennar á Selvogsbanka. Hrygningartími er seint miðað við aðra þorskfiska eða frá maí fram í miðjan júlí.

Lýsa fæst í SMB og SMH allt í kringum landið en er algengust í hlýja sjónum sunnan- og vestanlands. Gögn úr SMB eru notuð við stofnmat á tegundinni.

Bæði stofnvísitala og vísitala veiðistofns í SMB hækkuðu frá 2003 og náðu hámarki 2005 en lækkuðu svo aftur í fyrra horf árið 2015. Síðan hafa vísitölurnar smám saman hækkað og nálgast vísitala veiðistofns nú hæsta gildi sem mælst hefur.

Vísitölur SMH eru mun breytilegri og minna áreiðanlegar en sýna svipað mynstur og SMB.

Nýliðunarvísitölur (20 cm og minni) úr bæði SMB og SMH hafa sveiflast töluvert á rannsóknartímabilinu með áberandi toppum og lélegri nýliðun þar á milli.

Nokkuð gott samræmi er milli vísitalna í SMB og SMH.

NoteUm vísitölumyndir

Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.

Lýsa sem veiðist í SMB og SMH er á lengdarbilinu 10–60 cm.

NoteUm lengdardreifingamyndir

Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.

Lýsa veiðist mest á 50–250 m dýpi. Í SMB á árunum 2015–2023 var þó umtalsvert magn sem veiddist á meira en 250 m dýpi.

Lýsa í SMB veiðist mest í hlýja sjónum fyrir suðaustan, sunnan og suðvestan land. Útbreiðsla lýsu í SMH er svipuð og í SMB, þó er hlutfallslega meira af henni vestur af landinu en á vorin. Mjög lítið fæst af lýsu í kalda sjónum norður og austur af landinu.

NoteUm vísitölur eftir dýpi

Myndirnar sýna stofnvísitölur í þyngd skipt eftir dýptarbilum ásamt hlutfallslegri dreifingu eftir dýpi. Með því að velja ákveðið dýptarbil í skýringartextanum er hægt að skoða þróunina innan þess dýptarbils.