Keila (Brosme brosme)
Niðurhal gagna
Hlaða niður (Parquet) · 603.4 KB Hlaða niður (CSV) · 2.3 MB
Niðurhal gagna
Hlaða niður (Parquet) · 603.4 KB Hlaða niður (CSV) · 2.3 MB
Keila finnst allt í kringum landið og fæst í bæði SMB og SMH en þó í minna magni í SMH. Hér við land hrygnir keila í apríl til júlí og hrygnir hún einkum á útjöðrum landgrunnsins undan Suður- og Suðvesturlandi. Hún verður kynþroska 50–60 cm löng og er þá 5–10 ára gömul.
Vísitala hefur sveiflast yfir rannsóknartímabilið. Sveiflur í stofnstærð keilu má að hluta til rekja til sveiflna í nýliðun. Þannig er hægt að rekja lága vísitölu áranna 1995–2000 að hluta til lélegrar nýliðunar 1993–1996 og lágar vísitölur 2018–2020 má rekja að hluta til lélegrar nýliðunar 2010–2014.
Frá 2020 hefur vísitalan farið ört hækkandi og síðustu árin verið með þeim hæstu frá upphafi. Einnig hefur fjöldi smárrar keilu stóraukist undanfarin ár.
Gott samræmi er milli vísitalna í SMB og SMH.
Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.
Keilur sem fást í stofnmælingum eru flestar á bilinu 15 til 60 cm.
Lengdardreifing keilu í SMH sýnir að sú stofnmæling nær álíka vel utan um stóru keiluna og SMB, en lítið mælist af smárri keilu í SMH.
Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.


Keila kemur fyrst fram í SMB við eins árs aldur en er að mestu horfin við 13 ár aldur.
Aldursdreifingin er nokkuð jöfn yfir 2–8 ára. Þó má sjá ákveðna árganga koma inn í veiðina.
Myndirnar sýna aldursskiptar vísitölur í þyngd og fjölda. Með því að velja aldurshópa í skýringartextanum hægra megin á myndinni er hægt að skoða stærð hvers hóps sérstaklega.
Töflunar sýna fjöldavísitölur eftir aldri. Með því að færa músarbendil yfir einstaka hluta töflunnar er hægt að fylgjast með þróun árganga. Taflan notar bláan litaskala þar sem litadýpt endurspeglar fjölda. Því dekkri sem liturinn er, því hærri er fjöldinn. Fyrir neðan töfluna er mynd sem sýnir stærð árganga á lograkvarða. Bláa línan sýnir meðaltalið yfir tímabilið.