Skötuselur Lophius piscatorius
Niðurhal gagna
Hlaða niður (Parquet) · 430.3 KB Hlaða niður (CSV) · 687.7 KB
Niðurhal gagna
Hlaða niður (Parquet) · 430.3 KB Hlaða niður (CSV) · 687.7 KB
Skötusel er aðallega að finna sunnan og vestan við landið á dýpi allt frá 20–2 800 m, en hann er algengastur á 50–250 m dýpi. Hrygnur verða stærri en hængar og geta náð allt að 130 cm lengd, en hængar veiðast sjaldan stærri en 80 cm. Hrygnur verða kynþroska að meðaltali um 80 cm og hængar um 61 cm. Norðvesturmörk útbreiðslusvæðis skötusels eru við Ísland og hann er því næmur fyrir umhverfisbreytingum á svæðinu.
Gögn úr SMB og SMH eru mikilvæg við mat á stofnstærð, nýliðun og útbreiðslu skötusels.
Vísitölur heildarstofns og veiðistofns (40 cm og stærri) skötusels í SMB voru lágar og breyttust lítið fyrstu 14 árin. Árin 1998 til 2005 hækkaði heildarvísitala ört og hélst há til ársins 2011. Eftir það lækkaði hún jafnt og þétt til ársins 2023 en hefur farið hækkandi undanfarin ár.
Vísitala stærsta skötuselsins (90 cm og stærri) hækkaði hinsvegar ekki að marki fyrr en árið 2005 er hún þrefaldaðist. Síðan hefur vísitalan verið há en sveiflukennd.
Nýliðun jókst mikið á árunum 1998–2009 en hefur verið mjög lítil síðan. Vísbendingar eru um aukna nýliðun síðustu ár.
Ágætt samræmi er milli vísitalna í SMB og SMH. Vísitalan er þó mun sveiflukenndari í SMH þar sem lítið veiðist af skötusel.
Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.
Lengdardreifingar sýna greinilega hve lítið fékkst af skötusel í SMB árin 1985-1998. Síðan varð veruleg breyting á lengdardreifingu skötusels og er skötuselurinn á lengdarbilinu 15-100 cm.
Nýliðun kemur vel fram í báðum stofnmælingum sem 15–30 cm skötuselur.
Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.
Á árunum 1985–1999 fékkst skötuselur nær eingöngu fyrir sunnan land. Síðan varð veruleg breyting á útbreiðslunni og árin 2000–2017 fékkst talsvert af skötusel fyrir vestan og norðvestan land.
Skötusel í SMB er algengastur á 0–300 m dýpi. Í SMH fæst lítið af honum neðan 500 m. Líklega er sjávarhiti takmarkandi þáttur í útbreiðslu skötuselsins og sé miðað við hitastig á djúpslóðinni sunnanlands virðist skötuselurinn að öðru jöfnu forðast sjó sem er kaldari en 5 °C.
Myndirnar sýna stofnvísitölur í þyngd skipt eftir dýptarbilum ásamt hlutfallslegri dreifingu eftir dýpi. Með því að velja ákveðið dýptarbil í skýringartextanum er hægt að skoða þróunina innan þess dýptarbils.