Skarkoli (Pleuronectes platessa)
Niðurhal gagna
Hlaða niður (Parquet) · 553.2 KB Hlaða niður (CSV) · 1.6 MB
Niðurhal gagna
Hlaða niður (Parquet) · 553.2 KB Hlaða niður (CSV) · 1.6 MB
Skarkoli lifir á landgrunninu allt í kringum landið, aðallega á 0–150 metra dýpi. Mest er af skarkola á leirkenndum eða sendnum botni, vestur og norðvestur af landinu.
Hrygnur geta orðið mun stærri en hængar. Hrygning á sér stað á 50–100 metra dýpi í hlýjum sjó fyrir sunnan og vestan land og einnig eru smærri hrygningareiningar fyrir norðvestan og norðan.
Ungviði skarkolans leitar skjóls í sendnum fjörum og ver sínu fyrsta sumri rétt við fjörumörk, en heldur dýpra er líða fer á vetur.
Niðurstöður úr SMB mikilvæg gögn við úttekt á stofnstærð skarkola.
Lífmassavísitölur skarkola voru háar fyrir 1990 en lækkuðu hratt til ársins 2000. Þær fóru síðan hækkandi til ársins 2017 en hafa sveiflast nokkuð síðan.
Nýliðunarvísitala (20 cm og minni) hefur verið lág frá árinu 1998, þó með nokkrum toppum.
Nokkuð gott samræmi er milli stofnvísitalna skarkola í SMB og SMH. Hinsvegar nær SMH aðeins til áranna sem stofninn hefur verið í lágmarki.
Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.
Lengdardreifing skarkola hefur verið að færast til hægri þar sem meira er af stærri fiski.
Lítið veiðist af skarkola undir 25 cm í SMB og SMH og veldur því bæði gerð veiðarfæra og það að smæsti skarkolinn heldur sig á grynnra vatni en stofnmælingarnar ná til.
Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.


Aldursskiptar fjöldavísitölur sýna að þegar skarkolastofninn var stór árin fyrir 1990 samanstóð hann af mörgum aldurshópum.
Þegar stofninn var í lágmarki árin eftir 1994 voru hins vegar fáir skarkolar eldri en 9 ára. Síðan þá hefur eldri skarkola farið fjölgandi.
Myndirnar sýna aldursskiptar vísitölur í þyngd og fjölda. Með því að velja aldurshópa í skýringartextanum hægra megin á myndinni er hægt að skoða stærð hvers hóps sérstaklega.
Töflunar sýna fjöldavísitölur eftir aldri. Með því að færa músarbendil yfir einstaka hluta töflunnar er hægt að fylgjast með þróun árganga. Taflan notar bláan litaskala þar sem litadýpt endurspeglar fjölda. Því dekkri sem liturinn er, því hærri er fjöldinn. Fyrir neðan töfluna er mynd sem sýnir stærð árganga á lograkvarða. Bláa línan sýnir meðaltalið yfir tímabilið.