Steinbítur (Anarhichas lupus)
Niðurhal gagna
Hlaða niður (Parquet) · 786 KB Hlaða niður (CSV) · 3.5 MB
Niðurhal gagna
Hlaða niður (Parquet) · 786 KB Hlaða niður (CSV) · 3.5 MB
Steinbítur fæst bæði í SMB og SMH allt í kringum landið en þó í mestu magni í SMB á landgrunninu norðvestur af landinu.
Hrygning fer fram að hausti og snemma vetrar (september–nóvember) og eru aðalhrygningarstöðvarnar undan Vesturlandi á Látragrunni og á Vestfjarðarmiðum.
Stöðvar í SMB eru taldar ná vel yfir útbreiðslusvæði steinbíts við Ísland og eru stofnvísitölur úr SMB taldar vera betri mælikvarði á fjölda og lífmassa steinbíts en vísitölur úr SMH.
Stofnvísitala lækkaði frá 1985 til 1995. Árið 1996 hækkaði stofnvísitalan og var hún frekar há til ársins 1999, fór síðan lækkandi. Vísitalan var í sögulegu lágmarki á árunum 2010–2012, en hefur síðan hækkað.
Vísitala veiðistofns hefur almennt hækkað frá árinu 1995 en þó með miklum sveiflum. N
Nýliðunarvísitalan var há á árunum 1992–2003, en byrjaði að lækka eftir aldamótin. Nýliðunarvísitalan náði sögulegu lágmarki árið 2011 en hefur síðan farið hægt hækkandi.
Gott samræmi er milli vísitalna í SMB og SMH.
Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.
Lengdardreifing steinbíts í SMB er víð eða allt frá 10 cm upp í 100 cm en mest er af honum á lengdarbilinu 15–65 cm.
Fyrstu árin var lengdardreifing steinbíts jöfn yfir lengdarbilið 15–60 cm, en á árunum 1992–1995 veiddist meira af smáfiski. Þetta skýrir lækkun þyngdarvísitölu fram til ársins 1995 og hækkun fjöldavísitölu.
Lengdarskiptar vísitölur hafa verið tvítoppa undanfarin 15 ár í báðum stofnmælingum þar sem annar toppurinn er í krinum 25–30 cm en hinn í kringum 65 cm.
Lengdardreifing steinbíts í SMH er áþekk þeirri sem fæst í SMB.
Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.


Steinbítur kemur fyrst fram í SMB við eins árs aldur en er að mestu horfinn við 20 ára aldur.
Aldursdreifingin í báðum stofnmælingum er nokkuð jöfn yfir alla aldurshópa fram til 12–13 ára aldurs. Þó má sjá ákveðna árganga koma inn í veiðina.
Í SMH fæst hlutfallslega meira af yngri fiski (1–4 ára).
Myndirnar sýna aldursskiptar vísitölur í þyngd og fjölda. Með því að velja aldurshópa í skýringartextanum hægra megin á myndinni er hægt að skoða stærð hvers hóps sérstaklega.
Töflunar sýna fjöldavísitölur eftir aldri. Með því að færa músarbendil yfir einstaka hluta töflunnar er hægt að fylgjast með þróun árganga. Taflan notar bláan litaskala þar sem litadýpt endurspeglar fjölda. Því dekkri sem liturinn er, því hærri er fjöldinn. Fyrir neðan töfluna er mynd sem sýnir stærð árganga á lograkvarða. Bláa línan sýnir meðaltalið yfir tímabilið.