Litli karfi (Sebastes viviparus)

Litli karfi er minnsta tegundin af þeim þremur sem finnast af karfaættkvíslinn í hafinu kringum Ísland. Hinar tegundirnar eru gullkarfa og djúpkarfa. Algengasta stærð í afla er 18–25 cm en hann nær sjaldnast 30 cm lengd. Litli karfi er algengastur við Suður- og Suðvesturland á 40–300 m dýpi. Lítið er vitað um líffræði tegundarinnar en líkt og aðrar karfategundir gýtur litli karfi lifandi afkvæmum og er hægvaxta og langlíf tegund. Slíkar tegundir eru jafnan viðkvæmar fyrir of miklu veiðiálagi.

Stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum (SMB og SMH) ná yfir útbreiðslusvæði litla karfa á Íslandsmiðum.

Stofnvísitala litla karfa í SMB var stöðug fyrstu 15 ár rannsóknarinnar en hefur síðan þrefaldast. Að hluta til má rekja aukninguna til mikils magns á fáum togstöðvum líkt og hjá gullkarfa, enda eru öryggismörk mælinganna há. Stofnvísitala í SMH sýnir svipaða þróun.

Vísitala nýliðunar (litli karfi minni en 15 cm) hefur verið í báðum stofnmælingum sveiflukennd yfir tímabilið þar sem toppar koma í nýliðun en er þess á milli stöðug.

Þó gott samræmi sé á milli vísitalna í SMB og SMH hefur samræmið verið minna undanfarinn áratug.

NoteUm vísitölumyndir

Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.

Lengdardreifingar litla karfa í SMB og SMH sýna toppa á bilinu 20–25 cm.

Smár litli karfi (15 cm og minni) sem sást árin 2003–2012 hefur verið megin uppistaða stofnsins frá árinu 2008. Frá árinu 2018 hefur verið töluvert um smáan litla karfa.

NoteUm lengdardreifingamyndir

Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.

Mest fæst af litla karfa suður og vestur af landinu en lítið fæst í kalda sjónum norður og austur af landinu. Frá árinu 2015 hefur mest fengist af litla karfa á Vestursvæði. Litli karfi fæst á 100–400 m dýpi, en mest á 200–300 m dýpi.

NoteUm vísitölur eftir dýpi

Myndirnar sýna stofnvísitölur í þyngd skipt eftir dýptarbilum ásamt hlutfallslegri dreifingu eftir dýpi. Með því að velja ákveðið dýptarbil í skýringartextanum er hægt að skoða þróunina innan þess dýptarbils.