Grálúða (Reinhardtius hippoglossoides)

Grálúða á Íslandsmiðum er talin tilheyra stofni sem nær frá Austur-Grænlandi til Færeyja. Við Ísland hefur grálúða fundist allt í kringum landið en hún er þó afar sjaldséð undan suðurströndinni. Hún er algengust djúpt vestur af landinu og í köldum sjó norðan og austan af landinu.

Aðalhrygningarstöðvar grálúðu við landið eru taldar vera í landgunnshallanum djúpt vestur af landinu á eða yfir 1  000 m dýpi. Margt er þó óljóst um líffræði hennar og t.d. eru uppeldisstöðvar lítt þekktar.

SMH er talið ná yfir helsta útbreiðslusvæði grálúðu hér við land og er stofnvísitala úr SMH er uppistaða þeirra vísitölugagna sem notuð er í stofnmati. SMB nær ekki yfir megin útbreiðslusvæði grálúðu og stofnvísitölur úr SMB sýna miklar sveiflur á milli ára.

Stofnvísitölur grálúðu og vísitala veiðistofns í SMH hafa sveiflast yfir rannsóknartímabilið. Þær náðu hámarki árið 2001 en féllu síðan hratt og náðu lágmarki árið 2004. Eftir það stækkaði stofninn og undanfarin ár hafa vísitölur verið nálægt langtímameðaltali.

Fjöldavísitölur ungfisks (40 cm og minni) hafa einnig sveiflast talsvert. Þær voru lágar á árunum 2012–2022 en hafa síðan mælst þær hæstu síðan mælingar hófust árið 1996.

NoteUm vísitölumyndir

Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.

Grálúða sem veiðist í SMH er mest á bilinu 45 til 80 cm . Mjög lítið fæst af grálúðu undir 35 cm lengd sem gefur til kynna að uppeldisslóðir grálúðunnar við Ísland séu ekki hér við land.

Undanfarin ár hefur 60 cm og stærri grálúðu fækkað en að sama skapi hefur grálúðu sem er 40 cm og minni fjölgað.

NoteUm lengdardreifingamyndir

Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.

Aldursdreifing grálúðu hefur verið mæld í SMH síðan árið 2015. Grálúða sem veiðist er á aldrinum 3–22 ára, mest 8–11 ára.

Vísbendingar um aukna nýliðun sjást í aldursdreifingunni, þar sem fjöldi 4–6 ára grálúðu hefur aukist undanfarin ár.

NoteUm aldursskiptar vísitölur

Myndirnar sýna aldursskiptar vísitölur í þyngd og fjölda. Með því að velja aldurshópa í skýringartextanum hægra megin á myndinni er hægt að skoða stærð hvers hóps sérstaklega.

Taflan sýna fjöldavísitölur eftir aldri. Með því að færa músarbendil yfir einstaka hluta töflunnar er hægt að fylgjast með þróun árganga. Taflan notar bláan litaskala þar sem litadýpt endurspeglar fjölda. Því dekkri sem liturinn er, því hærri er fjöldinn. Fyrir neðan töfluna er mynd sem sýnir stærð árganga á lograkvarða. Bláa línan sýnir meðaltalið yfir tímabilið.