Sandkoli (Limanda limanda)

Sandkoli finnst á grunnslóð allt kringum landið, en aðallega hlýja sjónum fyrir sunnan, suðvestan og vestan land.

Sandkoli er botnlæg tegund sem lifir á sendnum eða leirkenndum botni frá fjörumörkum niður í 150 m dýpi.

Niðurstöður úr SMB eru notaðar við veiðiráðgjöf fyrir sandkola en vístiölur SMH eru til hliðsjónar.

Stofnvísitölur sandkola voru háar til ársins 2004, en hafa verið lágar síðan.

Nýliðunarvísitölur sandkola (24 cm og minni) lækkuðu eftir 2014 og hafa verið lágar síðan.

Gott samræmi er milli vísitalna í SMB og SMH.

NoteUm vísitölumyndir

Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.

Í stofnmælingum síðustu ára hefur toppur lengdardreifingarinnar hliðrast til hægri í átt að stærri fiski, sem endurspeglar tímabil lélegrar nýliðunar.

NoteUm lengdardreifingamyndir

Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.

Sandkoli finnst á grunnslóð allt í kringum landið en aðallega meðfram suðurströndinni og fyrir vestan land á minna en 100 m dýpi.

Á árunum 1986–2004 fékkst mest af sandkola í SMB fyrir suðaustan land, en eftir 2004 hefur lítið sést af sandkola á þeirri slóð. Þetta bendir til breytinga á útbreiðslu sandkola og nú fæst mest af honum fyrir suðvestan og vestan land.

Sambærilegar breytingar hafa átt sér stað á útbreiðslu sandkola í SMH og í SMB.

NoteUm vísitölur eftir dýpi

Myndirnar sýna stofnvísitölur í þyngd skipt eftir dýptarbilum ásamt hlutfallslegri dreifingu eftir dýpi. Með því að velja ákveðið dýptarbil í skýringartextanum er hægt að skoða þróunina innan þess dýptarbils.