Tindaskata (Amblyraja radiata)

Tindaskata er algengasta skötutegundin á Íslandsmiðum. Hún veiðist allt í kringum landið en er algengust fyrir norðan og norðaustan land. Hún nær allt frá 20 m dýpi að landgrunnsbrún á um 1  000 m dýpi en er algengust á 30-200 m dýpi.

Hún er heldur á djúpmið á veturna en á grunnið á vorin og á sumrin. Æxlun er talin eiga sér stað allt árið um kring en þó aðallega á sumrin. Líkt og hjá flestum öðrum tegundum brjóskfiska á sér stað innri frjóvgun hjá tindaskötu. Hún gýtur síðan frjóvguðum eggjum, péturskipum, tveimur í senn. Lítið er vitað um vöxt tindaskötu en hér við land verður hún kynþroska við u.þ.b. 43 cm lengd.

Tindaskata er ein algengasta fisktegundin í SMB og SMH. Gögn úr SMB eru mikilvæg í stofnmati á tegundinni

Í bæði SMB og SMH hafa stofnvísitölur tindaskötu vísitala fisks 50 cm og stærri lækkað um allt að þriðjung yfir rannsóknatímabil leiðangranna.

Vísitala ungviðis (20 cm og minni) hefur sveiflast mikið á tímabilinu án sýnilegrar leitni.

Þó töluvert minna veiðist af tindaskötu í SMH samanaborið við SMB er gott samræmi er milli vísitalna.

NoteUm vísitölumyndir

Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.

Tindaskata í SMB og SMH er á lengdarbilinu 10–60 cm og hún verður sjaldan stærri en 70 cm.

Lengdardreifingin er víð og fæst tiltölulega jafn mikið af öllum stærðum. Hún er þó algengust á bilinu lengdarbilinu 30–50 cm.

NoteUm lengdardreifingamyndir

Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.

Í bæði SMB og SMH er tindaskötu að finna frá um 20 m dýpi og niður fyrir 500 m. Hún er nokkuð jafndreifð eftir dýpi.

Í SMB er tindaskata mjög algeng á grunnslóð fyrir norðan og grunnt og nálægt landi fyrir sunnan og suðaustan. Í SMH er útbreiðslan einna mest við landgrunnsbrúnina fyrir norðvestan og norðan land suður á Íslands-Færeyjahrygg.

NoteUm vísitölur eftir dýpi

Myndirnar sýna stofnvísitölur í þyngd skipt eftir dýptarbilum ásamt hlutfallslegri dreifingu eftir dýpi. Með því að velja ákveðið dýptarbil í skýringartextanum er hægt að skoða þróunina innan þess dýptarbils.