Hlýri (Anarhichas minor)
Niðurhal gagna
Hlaða niður (Parquet) · 588.2 KB Hlaða niður (CSV) · 2.2 MB
Niðurhal gagna
Hlaða niður (Parquet) · 588.2 KB Hlaða niður (CSV) · 2.2 MB
Hlýri finnst allt í kringum landið en er þó mun algengari í kalda sjónum fyrir norðan og austan. Aðalhrygningarsvæði hlýra er djúpt út af Vestfjörðum síðla sumars og um haust. Hlýri verður almennt kynþroska 80 cm og 9 ára gamall.
Hlýri fæst bæði í SMB og SMH en þó í meira magni í SMB. SMB er talið ná vel utan um útbreiðslusvæði hlýra og eru stofnvísitölur úr SMB notaðar í stofnmati.
Ástand hlýra er talið alvarlegt þar sem stofninn er við varúðarmörk og nýliðun í sögulegu lágmarki.
Heildarvísitala og vísitala veiðistofns (60 cm og stærri) hlýra lækkuðu ört frá árinu 2006 fram til ársins 2010 og hafa síðan verið í sögulegu lágmarki.
Frá árinu 2010 hefur vísitala nýliðunar (40 cm og minni) verið mjög lág og í sögulegu lágmarki undanfarin ár.
Vísitala hlýra 90 cm og stærri hefur hins vegar verið nokkuð stöðug yfir rannsóknartímabilið.
Mjög gott samræmi er á milli vísitalna í SMB og SMH.
Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.
Hlýri sem fæst í SMB er á lengdarbilinu 10–100 cm.
Þegar heildarvísitala hlýra var sem hæst árin 1995–1998 var mest af 40–80 cm fiski.
Aukin nýliðun sem átti sér stað árin 1990–2000 kemur vel fram sem 10-30 cm fiskur. Nú sést mjög lítið af þessum fiski.
Lengdardreifing hlýra í SMH er í meginatriðum svipuð og í SMB.
Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.
Aldursskiptar vísitölur hlýra í SMB ná frá árinu 2014 þegar stofninn var orðinn mjög lítill.
Aldursbilið er frá 1 árs til 15 ára. Mest fæst af hlýra á aldrinum 7–12 ára. Ekkert hefur fengist af 1 árs fiski frá árinu 2021.
Myndirnar sýna aldursskiptar vísitölur í þyngd og fjölda. Með því að velja aldurshópa í skýringartextanum hægra megin á myndinni er hægt að skoða stærð hvers hóps sérstaklega.
Töflunar sýna fjöldavísitölur eftir aldri. Með því að færa músarbendil yfir einstaka hluta töflunnar er hægt að fylgjast með þróun árganga. Taflan notar bláan litaskala þar sem litadýpt endurspeglar fjölda. Því dekkri sem liturinn er, því hærri er fjöldinn. Fyrir neðan töfluna er mynd sem sýnir stærð árganga á lograkvarða. Bláa línan sýnir meðaltalið yfir tímabilið.