Hrognkelsi (Cyclopterus lumpus)

Hrognkelsi veiðast í báðum stofnmælingaleiðöngrum en þó í meira mæli í SMB. Ungviði heldur sig í efri lögum sjávar en við kynþroska leitar hrognkelsi á strandsvæði kringum Ísland til hrygningar.

Mikill stærðarmunur er á hængum (rauðmagi) og hrygnum (grásleppa) þar sem hrygnur eru mun stærri.

Tímasetning SMB virðist vera heppileg til mælinga á stofnstærð hrognkelsis, a.m.k. á kynþroska hluta stofnsins, því stofnmælingin fer fram á þeim tíma árs er hrognkelsi eru á leið á grunnslóð til hrygningar. Er vísitala stofnstærðar notaðar við árlega úttekt á stofnstærð hrognkelsis.

Stofnvísitala grásleppu sýnir miklar sveiflur en frá 2010 hefur vísitalan verið lág. Rauðmagar (hængar) veiðast í litlu magni í SMB.

Gott samræmi er milli vísitalna í SMB og SMH.

NoteUm vísitölumyndir

Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.

Í lengdardreifingu hrognkelsis í SMB koma yfirleitt fram tveir toppar sem stafa af misjafnri stærð kynjanna. Hængar eru flestir á bilinu 25 til 38 cm en hrygnur flestar 33 til 50 cm

Meira fæst af hrygnum en hængum og virðist kynjahlutfallið haldast nokkuð jafnt milli ára þar sem hrygnur eru á bilinu 60 til 85 % af heildarfjölda. Yfirleitt er lítill munur á lengdardreifingu milli ára.

NoteUm lengdardreifingamyndir

Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.

Hrognkelsi veiðist að mestu á 0–200 m dýpi.

Í SMB er hrognkelsi helst að finna fyrir norðan og austan land en en sum ár fæst einnig talsvert inn á Breiðafirði og Faxaflóa. Sveiflur sem koma fram í stofnvísitölum í SMB er ekki hægt að rekja til ákveðinna svæða, heldur virðast þær eiga sér stað á öllu rannsóknasvæðinu.

Útbreiðsla í SMH er svipuð þeirri í SMB en í mun minna fæst af hrognkelsi á haustin.

Undanfarin áratug hafa hrognkelsi í SMB veiðst í meira magni fyrir vestan en í upphafi rannsóknatímabilsins.

NoteUm vísitölur eftir dýpi

Myndirnar sýna stofnvísitölur í þyngd skipt eftir dýptarbilum ásamt hlutfallslegri dreifingu eftir dýpi. Með því að velja ákveðið dýptarbil í skýringartextanum er hægt að skoða þróunina innan þess dýptarbils.