Langa (Molva molva)

Langa er ein af stærri tegundum af ættbálki þorskfiska og getur orðið allt að 200 cm löng. Meðallengd löngu í árlegum leiðöngrum Hafrannsóknastofnunar að vori er um 70–90 cm og er hún algengust á 100–400 m dýpi. Langa nær kynþroska á aldrinum 5–8 ára og er þá 60–80 cm löng. Langa hrygnir aðallega í maí og júní, mest meðfram landgrunnsbrúninni sunnan, suðvestan og vestan Íslands.

Stofnvísitala löngu, vísitala veiðistofns (40 cm og stærri) og vísitala stórfisks (80 cm og strærri) lækkuðu til ársins 1995 og héldust lágar til ársins 2003. Eftir það hækkuðu vísitölur stöðugt og hafa verið háar en sveiflukenndar í rúman áratug.

Nýliðunarvísitala í SMB var há árin 2006–2010, en lækkaði síðan hratt og hefur síðan verið svipuð og árin 1985–2004. Mjög lítið fæst af smárri löngu í SMH.

Gott samræmi á milli vísitalna í SMB og SMH.

NoteUm vísitölumyndir

Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.

Lengdardreifing löngu sem veiðist í stofnmælingum er víð, allt frá 20 til 140 cm. Yfirleitt fæst þó mest af 50 til 100 cm löngu.

Lítið fæst af löngu 40 cm og smærri, en smálöngu varð einna helst vart í SMB árin 1987 og árin 2004–2006.

NoteUm lengdardreifingamyndir

Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.