Þykkvalúra (Microstomus kitt)

Þykkvalúra finnst umhverfis allt land en mest er af henni fyrir sunnan og vestan. Þykkvalúra er botnlæg tegund sem finnst aðallega á sand- eða grýttum botni á 20–200 m dýpi. Aðalveiðisvæðin eru á tiltölulega litlu dýpi vestan- og suðvestanlands.

SMB og SMH ná yfir helstu veiðisvæði þykkvalúru, en SMB gefur betri vísibendingar um breytingar í fjölda og lífmassa hennar.

Hvorug stofnmælinganna nær þó vel yfir uppeldissvæði þykkvalúru sem eru grunnt á svæðum þar sem erfitt er að nota hefðbundna botnvörpu.

Stofnvísitala þykkvalúru í SMB og vísitala veiðistofnsins (30 cm og lengri) féllu um meira en helming frá 1986 til 1995. Á sama tímabili lækkaði vísitala stærstu þykkvalúrunnar um tæplega 90 %.

Litlar breytingar voru á þessum vísitölum frá 1995 til 2001, en frá árinu 2001 fóru hækkuðu þær og náðu hámarki árið 2006. Þessar háu vísitölur fylgdu í kjölfar hækkandi vísitölu smárrar þykkvalúru allt frá árinu 2000.

Síðan hefur heildarvísitala og vísitala veiðistofns sveiflast og lækkað en vísitala stærstu þykkvalúrunnar hefur farið hækkandi.

Fjöldavísitala smárrar þykkvalúru var í hámarki árið 2011. Eftir lækkun árin 2011–2020 hefur hún hækkað ört.

Vísitölur þykkvalúru í SMH eru í mjög góðu samræmi við vísitölur í SMB.

NoteUm vísitölumyndir

Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.

Þykkvalúra virðist ekki skila sér vel í SMB fyrr en hún hefur náð um 30 cm lengd en hún veiðist þó allt niður í 10 cm.

Lengdardreifingar sýna vel aukningu þykkvalúru undir 20 cm lengd frá árinu 2000 og stækkandi veiðistofn frá árinu 2003.

Undanfarin ár hefur lengdardreifingin verið víð og bæði mælst mikið af stórri og smárri þykkvalúru.

Lengdardreifing þykkvalúru í SMH er með svipuðu sniði og í SMB.

NoteUm lengdardreifingamyndir

Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.

Útbreiðsla þykkvalúru hélst nokkuð stöðug til ársins 2015. Síðan hefur vaxandi hlutfall fengist fyrir vestan og norðvestan land en minna við sunnanvert landið. Lítið fæst af þykkvalúru í kalda sjónum fyrir norðan og austan land.

NoteUm vísitölur eftir dýpi

Myndirnar sýna stofnvísitölur í þyngd skipt eftir dýptarbilum ásamt hlutfallslegri dreifingu eftir dýpi. Með því að velja ákveðið dýptarbil í skýringartextanum er hægt að skoða þróunina innan þess dýptarbils.