Blálanga (Molva dypterygia)

Blálanga er djúpsjávartegund og veiðist á meira dýpi en aðrar tegundir af þorskfiskaætt.

Gögn úr SMB hafa lítið verið notuð við mat á stofnstærð blálöngu enda nær SMB aðeins að hluta til útbreiðslusvæðis hennar. Stöðvanet SMH nær dýpra en SMB og veitir því betri upplýsingar um stofn hennar. Einungis eru skoðuð SMH gögn frá árinu 2000, þar sem rannsóknasvæðið árin 1996–1999 náði ekki nema að hluta yfir útbreiðslu blálöngu á Íslandsmiðum.

Heildarvísitala (í þyngd og fjölda) blálöngu og vísitala veiðistofns (50 cm og stærri) í SMH hækkaði ört fram til ársins 2009 en lækkaði jafnt og þétt fram til ársins 2022 þegar hún var svipuð og í upphafi mælinga árið 2000. Undanfarin ár hafa vísitölurnar hækkað.

Heildarvísitala blálöngu í SMB féll hratt frá 1990 fram til ársins 1995 en hækkaði aftur árið 2004 líkt og í SMH. Aftur var niðursveifla frá árinu 2012 og mjög lítið fékkst af blálöngu í SMB næstu árin. Líkt og í SMH hafa vísitölur hækkað undanfarin ár.

Vísitölur smæstu blálöngunnar (40 cm og minni) eru yfirleitt lægri í SMH en í SMB, öfugt við stærri blálöngu. Það getur stafað af því að blálanga leiti dýpra eftir því sem hún stækkar og einnig af mismunandi veiðanleika þeirra veiðarfæra sem notuð eru við þessar stofnmælingar.

Mjög lítið fékkst af smæstu blálöngunni á árunum 2010 – 2020 í báðum stofnmælingunum sem endurspeglast í lækkandi stofnvísitölu á sama tímabili. Undanfarin ár hefur nýliðunarvísitalan hækkað.

NoteUm vísitölumyndir

Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.

Lengdardreifing blálöngu í SMB sýnir vel minnkun stofnsins frá 1989 og hvernig stór blálanga nánast hvarf úr SMB árin 1995 til 2003. Frá 1998 jókst magn smárrar blálöngu sem skilaði sér í veiðistofninn.

Mun meira fæst af blálöngu í SMH, einkum fiska stærri en 50 cm. Aukning blálöngu í SMB og SMH frá 1999 fram til ársins 2009 kemur vel fram í lengdardreifingum.

NoteUm lengdardreifingamyndir

Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.

Útbreiðsla blálöngu í SMB er að mestu bundin við dýpri hluta rannsóknasvæðisins suðvestur og suðaustur af landinu.

Útbreiðsla blálöngu í SMH er með öðru móti en í SMB enda togað dýpra. Slæðingur hefur fengist í djúpköntum suður af landinu, mest fæst suður og suðvestur af Reykjanesi og talsvert einnig djúpt vestur af landinu norður á Hampiðjutorg og hin síðari ár suðaustur af landinu (á Þórsbanka og Íslands-Færeyjahrygg).

NoteUm vísitölur eftir dýpi

Myndirnar sýna stofnvísitölur í þyngd skipt eftir dýptarbilum ásamt hlutfallslegri dreifingu eftir dýpi. Með því að velja ákveðið dýptarbil í skýringartextanum er hægt að skoða þróunina innan þess dýptarbils.