Lúða (Hippoglossus hippoglossus)

Lúða er stærst allra flatfiskategunda og stærsti beinfiskur sem veiðist við Ísland. Lúða er seinkynþroska; um helmingur hænga er kynþroska við 80 cm og helmingur hrygna við 103 cm. Lúða finnst allt í kringum landið en er mest áberandi vestan og sunnan lands. Hún er botnlæg tegund sem dvelur á sendnum, leirkenndum, grýttum og jafnvel á hörðum botni niður á 2  000 m dýpi.

Lúða er vöktuð í stofnmælingu botnfiska bæði að vori (SMB) og hausti (SMH). SMB fer að mestu fram innan 500 m dýpis, en á þessari slóð heldur unglúðan sig, og það er einkum þriggja til sex ára ókynþroska lúða sem veiðist í SMB. Í SMH er meira um stórlúður þar sem togað er dýpra. SMB mælir breytingar í fjölda/lífmassa ókynþroska lúðu betur en SMH þar sem tímaröðin er lengri og öryggismörk vísitalna eru lág. Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar byggir því að mestu á upplýsingum úr SMB. Hins vegar tekur hvorug stofnmæling nægilega vel til svæða þar sem kynþroska lúða heldur sig og eru því ekki fullnægjandi til að meta stærð hrygningarstofns.

Heildarvísitala lúðu í SMB lækkaði hratt frá árinu 1985 til 1992 og hefur verið lág síðan. Frá árinu 2014, þegar vísitalan var sú lægsta síðan mælingar hófust, hefur hún hækkað lítilsháttar í báðum stofnmælingaleiðöngrum og er nú um þriðjungur af því sem hún var árið 1985 þegar hún var hæst.

Magn lúðu 86 cm og stærri hefur sveiflast mikið en hefur aukist undanfarin ár. Mikil óvissa er í þeim tölum þar sem öryggismörkin eru víð.

Fjöldi lúðu 30 cm og minni og 31–60 cm féll hratt frá 1985 til 1990 og hefur síðan þá verið í lágmarki, sérstaklega fjöldi lúðu 30 cm og minni.

Gott samræmi er milli vísitalna í SMB og SMH.

NoteUm vísitölumyndir

Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.

Smálúða (30–60 cm) er mest áberandi í SMB, en í SMH er lengdardreifingin víð og án sýnilegs mynsturs

NoteUm lengdardreifingamyndir

Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.