Ýsa (Melanogrammus aeglefinus)
Niðurhal gagna
Hlaða niður (Parquet) · 1.2 MB Hlaða niður (CSV) · 6 MB
Niðurhal gagna
Hlaða niður (Parquet) · 1.2 MB Hlaða niður (CSV) · 6 MB
Ýsa er sú tegund sem mest fæst af í fjöldi fiska talið, bæði í SMB og SMH, enda kemur ýsa strax í miklum mæli sem 0-grúppa í SMH og eins árs í SMB.
Við Ísland er ýsa talin vera á mörkum útbreiðslu sinnar vegna kaldra sjógerða sem hindra dreifingu hennar til norðurs.
Stofnvísitala ýsu og vísitala veiðistofns (40 cm og stærri) lækkuðu frá árinu 1988 til 2000 þegar þær náðu sögulegu lágmarki. Árgangarnir 1998–2002, að undanskildum 2001, voru allir nokkuð stórir og árgangur 2003 sá stærsti sem mælst hefur. Þessi góða nýliðun leiddi til þess að stofnvísitalan hækkaði til ársins 2005.
Eftir það lækkaði hún hratt til ársins 2010 og hélst lág fram til ársins 2016, en á þessum tíma voru flestir árgangarnir fremur litlir.
Stofnvísitala ýsu hefur hækkað frá árinu 2016 eftir að vera lág á árunum 2010–2016.
Miklar sveiflur í stofnstærð ýsu má rekja til sveiflna í nýliðun. Líkt og hjá ýsustofnum á öðrum hafsvæðum hefur nýliðun ýsu verið mjög sveiflukennd í gegnum tíðina og er sveiflukenndari miðað við aðra botnlæga fiska, eins og þorsk.
Gott samræmi er milli vísitalna í SMB og SMH.
Myndirnar sýna ýmsar vísitölur í þyngd og í fjölda. Skyggð svæði sýna 95 % öryggismörk. Hægt er að skoða heildarvísitölur í þyngd og fjölda og samanburð vísitalna í SMB og SMH (hlutfallslegar vísitölur). Einnig eru sýndar vísitölur nokkurra stærðarflokka í þyngd og fjöldavísitölur minnsta fisksins sem gefa vísbendingu um nýliðun.
Lengdarskiptar vísitölur ýsu fyrir allt athugunarsvæðið í SMB og SMH sýna vel þegar stórir árgangar eru að koma inn á fyrsta aldursári eins og árin 1986, 1990, 1991, 1996, 2004 og mörg undanfarin ár.
Stóru árgangarnir sjást síðan sem tveggja og þriggja ára en eru ekki eins áberandi eftir það. Stóri 2003 árgangurinn kemur þó vel fram í lengdardreifingum sem 1-7 ára fiskur.
Lengdardreifingar gefa nokkuð aðra mynd af ástandi ýsustofnsins á upphafsárum SMB en aldursdreifingar, þar sem meðalþyngd eftir aldri var töluvert hærri á níunda áratuginum en síðar.
Myndirnar sýna lengdarskiptar vísitölur (í milljónum) eftir árum.


Í seinni tíð hefur fjöldi fiska 11 ára og eldri í SMB aukist töluvert, sem er í samræmi við þróun lífmassa 60 cm og stærri ýsu. Eftir slaka nýliðun áranna 2007–2013 hefur nýliðun farið vaxandi og mælast árgangar 2019–2021 stórir.
Myndirnar sýna aldursskiptar vísitölur í þyngd og fjölda. Með því að velja aldurshópa í skýringartextanum hægra megin á myndinni er hægt að skoða stærð hvers hóps sérstaklega.
Töflunar sýna fjöldavísitölur eftir aldri. Með því að færa músarbendil yfir einstaka hluta töflunnar er hægt að fylgjast með þróun árganga. Taflan notar bláan litaskala þar sem litadýpt endurspeglar fjölda. Því dekkri sem liturinn er, því hærri er fjöldinn. Fyrir neðan töfluna er mynd sem sýnir stærð árganga á lograkvarða. Bláa línan sýnir meðaltalið yfir tímabilið.