| Tegund stöðva | Íslensk lögsaga | Færeysk lögsaga | Alþjóðlegt hafsvæði | Lögsaga Jan Mayen | Samtals |
|---|---|---|---|---|---|
| Flotvörputog | 2 | 3 | 4 | 0 | 9 |
| Sonda (CTD) | 8 | 7 | 4 | 7 | 26 |
| WP2 | 8 | 7 | 4 | 6 | 25 |
| Samtals | 18 | 17 | 12 | 13 | 60 |
Helstu niðurstöður vistfræðileiðangurs í Austurdjúpi og vestanverðu Noregshafi á RS Þórunni Þórðardóttur í maí 2026
Results of the Icelandic part of the International Ecosystem Survey in the Nordic Seas (IESNS) in May 2026 on R/V Þórunn Þórðardóttir
Leiðangursskýrsla · Þ5-2026
Ágrip
Hafrannsóknastofnun hefur tekið þátt í árlegum alþjóðlegum vistfræðileiðangri í Austurdjúpi og aðliggjandi hafsvæðum í maí frá upphafi hans árið 1995. Markmið leiðangursins er að rannsaka umhverfisskilyrði og svifdýrasamfélög og að fylgjast með útbreiðslu, göngum og stofnstærð norsk-íslenskrar síldar og kolmunna. Í ár var íslenski hluti leiðangursins farinn á RS Þórunni Þórðardóttur (leiðangur Þ5-2026) dagana 27. apríl til 14. maí og náði leiðangurssvæðið lengra til suðurs en undanfarin ár, allt suður á Íslands-Færeyjahrygg. Síld fannst einkum í vesturhluta leiðangurssvæðisins, austur af Íslandi, og mældust 83,1% bergmálsgilda síldar vestan 5°V. Í togsýnum var mest af 10 ára síld (2016-árganginum; 44,3% aldursgreindra fiska), en 5 ára síld (2021-árgangurinn; 25,2%) kom þar á eftir. Meðalþyngd síldar eftir lengd var með því minnsta sem mælst hefur frá upphafi tímaraðarinnar árið 2008, en þó ívið meiri en árið 2025 í flestum lengdarflokkum. Kolmunni mældist einkum á syðstu leiðarlínunni, á Íslands-Færeyjahrygg. Í togsýnum var hann að mestu 1–2 ára fiskur (71,4% aldursgreindra fiska) úr 2024- og 2025-árgöngunum, en á syðstu togstöðinni var hann stærri og eldri. Meðalþurrvigt átu var 7,4 g m−2, meiri en árið 2025 (5,9 g m−2), en samanburður milli ára er varhugaverður þar sem leiðangurssvæðið var annað en áður. Ítarlegri samanburður á átumagni og ástandi sjávar milli ára og svæða er gerður í sameiginlegri leiðangursskýrslu allra þátttökuþjóða, þar sem einnig eru birtar bergmálsvísitölur síldar og kolmunna fyrir allt leiðangurssvæðið.
Lykilorð: Bergmálsmælingar, norsk-íslensk síld, kolmunni, áta, vistfræðileiðangur, umhverfi, Noregshaf
Abstract
The Marine and Freshwater Research Institute has participated in the International Ecosystem Survey in the Nordic Seas (IESNS) in May since it began in 1995. The aim of the survey is to monitor ocean conditions and zooplankton, and the distribution, migration and abundance of Norwegian spring-spawning herring and blue whiting. This year the Icelandic part of the survey was carried out on R/V Þórunn Þórðardóttir (cruise Þ5-2026) from 27 April to 14 May, and the survey area extended further south than in recent years, to the Iceland–Faroe Ridge. Herring was found mainly in the western part of the survey area, east of Iceland, with 83.1% of the herring acoustic backscatter recorded west of 5°W. The most abundant age group in the trawl samples was 10-year-old herring (2016 year class; 44.3% of aged fish), followed by 5-year-old herring (2021 year class; 25.2%). Mean weight-at-length was among the lowest recorded since the time series began in 2008, although slightly higher than in 2025 in most length classes. Blue whiting was recorded mainly on the southernmost transect, on the Iceland–Faroe Ridge. In the trawl samples it consisted mainly of one- and two-year-old fish (71.4% of aged fish) of the 2024 and 2025 year classes, but fish at the southernmost trawl station were larger and older. Mean zooplankton dry weight was 7.4 g m−2, higher than in 2025 (5.9 g m−2), but the comparison should be interpreted with caution because the survey area differed from previous years. A more detailed comparison of zooplankton and ocean conditions among years and areas is given in the joint survey report from all participating nations, which also presents acoustic abundance indices of herring and blue whiting for the whole survey area.
Keywords: Acoustic measurements, Norwegian spring-spawning herring, blue whiting, zooplankton, ecosystem survey, environment, Norwegian Sea
1 Inngangur
Allt frá árinu 1995 hefur Hafrannsóknastofnun tekið þátt í árlegum alþjóðlegum vistfræðileiðangri í Norðurhöfum (International Ecosystem Survey in the Nordic Seas, IESNS) í maí, sem nær yfir Austurdjúp, þ.e. Noregshaf og aðliggjandi hafsvæði. Meginmarkmið leiðangursins er þríþætt: að rannsaka (a) magn og dreifingu uppsjávarfiska, einkum norsk-íslenskrar síldar, (b) ástand sjávar með tilliti til hita og seltu og (c) magn, samsetningu og dreifingu smáátu (m.a. rauðátu, Calanus finmarchicus, og pólátu, C. hyperboreus). Í tímans rás hafa ýmis verkefni bæst við, svo sem mælingar á styrk næringarefna og flúrljómun í sjó, rannsóknir á samsetningu, dreifingu og magni stórátu (m.a. ljósátu) og skráning sjávarspendýra á siglingaleiðinni. Í ár tóku eftirtalin skip þátt í leiðangrinum: Dana fyrir hönd Evrópusambandsins (sameiginlegur leiðangur Danmerkur, Þýskalands, Írlands, Hollands og Svíþjóðar), Jákup Sverri frá Færeyjum, Þórunn Þórðardóttir frá Íslandi, G.O. Sars frá Noregi og leiguskipið Resolute frá Bretlandi (ICES 2026). Rússar mældu í Barentshafi í maí og var gögnum þaðan deilt að loknum sameiginlegum fundi þátttökuþjóða eftir leiðangurinn (ICES 2026).
Noregshaf og aðliggjandi hafsvæði einkennast af mikilli framleiðni, sem m.a. helgast af sjógerðum, straumum og lóðréttri blöndun sjávar að vetri og vori (Skjoldal o.fl. 2004). Hlýr, saltur og næringarríkur Atlantssjór berst að sunnan inn í Noregshaf og heldur áfram norður í Grænlandshaf og Barentshaf. Vestan til í Noregshafi berst hins vegar pólsjór úr norðri með Austur-Íslandsstraumnum (Skjoldal 2004) og eru því skörp skil milli þessara sjógerða þar. Þrír af stærstu uppsjávarfiskistofnum Norður-Atlantshafs, norsk-íslensk síld, makríll og kolmunni, nýta Noregshaf sem sumarbeitarsvæði og er stærð stofnanna nátengd mikilli framleiðni hafsvæðisins (Skjoldal o.fl. 2004; Utne o.fl. 2012; Trenkel o.fl. 2014). Þessar tegundir éta einkum sviflæg krabbadýr (krabbaflær, ljósátur og sviflægar marflær) en einnig önnur sviflæg dýr, t.d. vængjasnigla og pílorma (Bachiller o.fl. 2016; Guðmundur J. Óskarsson o.fl. 2016; Kvaavik o.fl. 2019). Fæðuvefur uppsjávarvistkerfisins er flókinn. Plöntusvif, einkum kísilþörungar og svipuþörungar, er undirstaða framleiðninnar og er étið af smávöxnu dýrasvifi (átu), sem síðan er fæða stærri dýrasvifstegunda og fiska (Skjoldal o.fl. 2004).
Stofnmæling norsk-íslenska síldarstofnsins hefur frá upphafi verið veigamesti þáttur leiðangursins. Þegar leiðangurinn er farinn í maí hefur síldin nýlokið hrygningu við vesturströnd Noregs og er í fæðugöngu vestur á bóginn. Samanburður við vistfræðileiðangurinn í júlí sýnir að síldin hefur ekki náð á meginfæðuslóðir stofnsins í maí, því að útbreiðsla hennar í júlí er mun vestlægari, norðan Íslands og milli Íslands og Færeyja, og í vaxandi mæli suður og austur af Jan Mayen síðustu ár. Maíleiðangurinn gefur því ekki fullkomna mynd af beitarsvæðum stofnsins að sumarlagi, en hann skiptir miklu fyrir skilning á farleiðum stofnsins og nær yfir allt útbreiðslusvæði hans á þessum árstíma. Hann gefur þannig góða mynd af stærð og aldurssamsetningu síldarstofnsins. Leiðangurinn gefur einnig upplýsingar um kolmunna, þar sem töluverður hluti ókynþroska kolmunna heldur sig á leiðangurssvæðinu. Leiðangurinn nær hins vegar ekki yfir allt útbreiðslusvæði fullorðins kolmunna á þessum tíma og hafa kolmunnavísitölur leiðangursins því ekki verið notaðar í stofnmati. Á sama hátt er aðeins lítill hluti makrílstofnsins genginn inn á leiðangurssvæðið úr suðri á þessum árstíma og hafa niðurstöður leiðangursins um makríl ekki þýðingu í stofnmati.
Tímaraðirnar úr leiðangrinum, sem ná nú yfir 32 ár, eru mikilvægar fyrir stofnmat norsk-íslensku síldarinnar og fyrir mat á breytileika í umhverfi og vistkerfi hafsins. Vísitölur um fjölda síldar eftir aldri, sem fást úr bergmálsmælingum og sýnatöku úr síldarlóðningum, eru notaðar til að stilla stofnmatslíkan stofnsins. Gögnin hafa einnig nýst í margvíslegum rannsóknum á síldarstofninum (Eliasen o.fl. 2021; Homrum o.fl. 2022; Stenevik o.fl. 2022; Slotte o.fl. 2025). Vísitölur um magn átu (þurrvigt á flatareiningu) hafa sýnt mikinn breytileika á tímabilinu og hafa m.a. mikla þýðingu fyrir vinnuhóp ICES um samþætt vistkerfismat fyrir Noregshaf, WGINOR (ICES 2025a). Loks eru sjómælingarnar, sem gerðar eru með sondu, mikilvægur hlekkur í neti árlegra sjómælinga í Norðurhöfum og eru notaðar til að lýsa umhverfisbreytingum og sem inntaksgögn í haffræðilíkön.
Hér er greint frá helstu niðurstöðum íslenska hluta leiðangursins í maí 2026. Undanfarin ár hefur RS Árni Friðriksson verið notaður til verksins, en í ár var farið á RS Þórunni Þórðardóttur (leiðangur Þ5-2026). Leiðangurssvæðið var einnig annað en undanfarin ár og náði lengra til suðurs, allt suður á Íslands-Færeyjahrygg (sjá kafla 2.1 og 4). Sameiginleg skýrsla allra þátttökuþjóða (ICES 2026) var lögð fram sem vinnuskjal á fundi vinnuhóps ICES um víðförula stofna (WGWIDE) í ágúst 2026 og verður lögð fram á fundi vinnuhóps ICES um alþjóðlega uppsjávarleiðangra (WGIPS) í janúar 2027. Þar er gerð grein fyrir bergmálsmælingum á síld og kolmunna, auk annarra niðurstaðna, fyrir allt leiðangurssvæðið.
2 Aðferðir
2.1 Leiðarlínur og sjórannsóknastöðvar
Leiðarlínur allra þátttökuskipa og staðsetning sjórannsóknastöðva (sondu- og háfastöðva) eru ákveðnar áður en leiðangurinn hefst. Sömu undirsvæði (e. strata) hafa verið notuð frá því að þau voru endurskilgreind árið 2020 (Mynd 1). Svæðin voru ákvörðuð út frá greiningu á þéttleika og stærðarsamsetningu síldar árin 2015–2019 og ná yfir meginútbreiðslusvæði stofnsins. Innan hvers undirsvæðis er jafnt bil milli leiðarlína og er fyrsta línan staðsett af handahófi. Sjórannsóknastöðvar eru með um 60 sjómílna millibili eftir leiðarlínunum (Mynd 2). Í undirsvæði 1 skiptust Þórunn Þórðardóttir, Jákup Sverri og Resolute á um að sigla leiðarlínurnar og í undirsvæði 3 einkum Þórunn Þórðardóttir og Dana (Mynd 1).
Leiðangurinn hófst 27. apríl þegar RS Þórunn Þórðardóttir lét úr höfn í Hafnarfirði. Siglt var beint á fyrstu leiðarlínuna suðaustur af landinu og hófust mælingar á henni 29. apríl. Hlé var gert á mælingum norður af Færeyjum og var haldið til hafnar í Færeyjum, þar sem rannsóknafólk bættist í hópinn og skipið tók eldsneyti. Að því loknu voru austur–vestur-leiðarlínurnar sigldar hver af annarri til norðurs. Síðustu leiðarlínunni lauk 11. maí og kom skipið til hafnar í Hafnarfirði 14. maí. Leiðangurinn stóð í 18 daga og var heildarsiglingaleiðin um 3.330 sjómílur, en bergmálsmælt var á um 2.200 sjómílna leið innan leiðangurssvæðisins (ICES 2026). Í þessari skýrslu eru notaðar bergmálsmælingar á 1.590 sjómílum á austur–vestur-leiðarlínunum (sjá kafla 2.4). Veður var að mestu hagstætt, en fáeina daga hamlaði það sýnatöku með flotvörpu og féllu tvö tog niður af þeim sökum. Auk þess féll ein WP2-stöð niður vegna vinds. Veðrið hafði hvorki áhrif á siglingahraða né bergmálsmælingar og þurfti því ekki að nýta aukadaga í veðurstopp.
Alls voru teknar 60 stöðvar á 35 stöðum í leiðangrinum: níu flotvörputog, 26 sondustöðvar og 25 WP2-stöðvar (Mynd 2). Stöðvarnar dreifðust á fjögur hafsvæði: íslenska lögsögu, færeyska lögsögu, alþjóðlegt hafsvæði og lögsögu Jan Mayen, en engin stöð var í lögsögu Noregs við meginlandið (Tafla 1).
2.2 Sjórannsóknir
Sondu (CTD) með fjórum sjótökum á rósettunni var slakað niður á um 1.000 m dýpi, eða að botni þar sem grynnra var, og skráði hún hita, seltu og blaðgrænu. Sjósýni voru tekin á mesta dýpi til kvörðunar á seltumælingum og á 50 m, 20 m og við yfirborð til kvörðunar á blaðgrænumælingum og tegundagreiningar á plöntusvifi. Kvörðunarsýni fyrir seltu og blaðgrænu voru unnin í landi að leiðangri loknum, sem og næringarefnasýni sem fryst voru um borð. Í þessari skýrslu er ekki greint frá niðurstöðum blaðgrænumælinga eða tegundasamsetningu plöntusvifs. Alls voru teknar 26 sondustöðvar (Tafla 1 og Mynd 2). Í skýrslunni eru sýnd meðalgildi hita og seltu úr mælingum á niðurleið á 5, 50, 100, 200 og 400 m dýpi (±2 m). Síriti skráði auk þess hita og seltu yfirborðssjávar allan leiðangurinn.
2.3 Átuháfasýni
Smáu dýrasvifi (e. mesozooplankton) var safnað með fínriðnum háfum (WP2 með 200 µm möskvastærð) á hverri sjórannsóknastöð þegar veður leyfði. Tekin voru þrjú háfsýni á hverri stöð, tvö frá 50 m dýpi (annað varðveitt í formalíni og hitt fryst) og eitt frá 200 m dýpi (helmingur þess varðveittur í formalíni og hinn helmingurinn frystur), eða frá botni þar sem grynnra var. Öll sýni voru rúmmálsmæld, hvort sem þau voru varðveitt í formalíni eða fryst. Áður en sýni voru fryst voru þau stærðarflokkuð (<1.000 µm og >1.000 µm) og stærri dýr tínd úr >1.000 µm hlutanum (t.d. ljósáta, marflær og pílormar). Þurrvigt frystu sýnanna var mæld í landi til að meta lífmassa dýrasvifs á flatareiningu. Sýnin sem varðveitt voru í formalíni eru ætluð til greininga á tegundasamsetningu og þroskastigum svifdýrasamfélagsins og verða niðurstöður þeirra birtar annars staðar. Alls voru teknar 25 WP2-stöðvar í leiðangrinum (Tafla 1 og Mynd 2).
2.4 Bergmálsmælingar
Bergmálsgögnum var safnað með bergmálsmæli af gerðinni Simrad EK80 á sex tíðnum, 18, 38, 70, 120, 200 og 333 kHz. Botnstykki mælisins voru á um 7 m dýpi og efri mörk heildunar á 12 m dýpi (ICES 2026), svo að síld ofar í sjónum mældist ekki, en gögn voru skráð og túlkuð niður á um 510 m dýpi. Hráskrár voru vistaðar á hefðbundinn hátt og bergmálsgögn túlkuð í LSSS-forritinu með −72 dB þröskuldi til að skilja átu frá (ICES 2015). Túlkun bergmálsgagna hefur verið samræmd milli þátttökuþjóða innan vinnuhóps ICES um alþjóðlega uppsjávarleiðangra, WGIPS (ICES 2025b), og byggist á nokkrum þáttum, m.a. aflasamsetningu togsýna, lögun og einkennum lóðninga, svörun við breytingum á þröskuldi, svörun á mismunandi tíðnum og stærðardreifingu endurvarps. Auk þess var sónar af gerðinni Simrad SU90 hafður í gangi allan leiðangurinn til að fá vísbendingu um hversu vel bergmálsmælirinn endurspeglaði þéttleika síldar og til þess að meta hvort síld væri ofarlega í vatnssúlunni og færi yfir botnstykkin. Í lok leiðangurs voru túlkanir fyrir hverja tegund vistaðar á 1 sjómílu millibili og á 10 m dýptarbilum og eru það gögnin sem bergmálsvísitölurnar byggjast á. Dýpi sem gefið er upp í niðurstöðum er miðja 10 m dýptarbila. Aðeins voru notaðar mælingar á austur–vestur-leiðarlínum en ekki á þverleggjum. Bergmálsmælirinn var kvarðaður í Hvalfirði 17. nóvember 2025.
2.5 Flotvörpusýni
| Tegund | Fjöldi kvarnaðra | Fjöldi lengdarmældra |
|---|---|---|
| * Þyngd, kyn og kynþroski eru einnig skráð, samhliða kvörnun. | ||
| Síld | 50 | 200 |
| Kolmunni | 25 | 50* |
| Makríll | 50 | 50 |
| Lax | Allir | |
| Loðna | 100 | |
| Loðna (0-grúppa) | 30 | |
| Brynstirtla | 50 | 50 |
| Aðrar tegundir (að öllu jöfnu) | 30 | |
Til að fá upplýsingar um tegunda- og lengdarsamsetningu fiska var togað í lóðningar þegar þurfa þótti. Alls voru tekin níu flotvörputog (Tafla 1 og Mynd 2). Togað var með flotvörpu af gerðinni Multpelt 416, sem er minni en sú flotvarpa sem notuð hefur verið í leiðangrinum undanfarin ár; lóðrétt opnun hennar er 10–14 m og möskvi í poka 20 mm (ICES 2026). Togað var bæði við yfirborð og á meira dýpi og réðst ákvörðun um sýnatöku af bergmálsskráningum og af tíma frá síðasta togi. Engin ljósátutog voru tekin í ár, þar sem hentug ljósátuvarpa var ekki klár fyrir brottför.
Þegar aflinn var kominn um borð var þyngd hverrar tegundar ákvörðuð og tekin hlutsýni til frekari mælinga (Tafla 2). Fiskar voru lengdarmældir niður að næsta heila sentímetra og ýmist einungis lengdarmældir eða teknir til kvörnunar. Fiskar sem teknir voru til kvörnunar voru lengdarmældir, vigtaðir (0,01 g nákvæmni), kynkirtlar vigtaðir, kyn og kynþroskastig ákvörðuð og hreistur (síld) eða kvarnir (aðrar tegundir) tekin til aldursgreiningar. Af kolmunna voru 75 fiskar á hverri stöð vigtaðir og kynþroskagreindir, en kvarnir teknar úr 25 þeirra. Magar úr tíu fyrstu fiskunum í kvörnun voru frystir til greiningar á fæðu síðar. Erfðasýni voru tekin úr fyrstu 50 kvörnuðu síldunum og fyrstu 25 kvörnuðu kolmunnunum á hverri stöð þar sem nægilega margir fiskar fengust. Aldursgreiningar á síld og kolmunna voru gerðar um borð. Yfirlit yfir tegundir í afla og mælingar á þeim er í Töflu 3.
| Tegund | Fjöldi lengdarmældra | Fjöldi aldursgreindra | Fjöldi kynþroskagreindra | Fjöldi vigtaðra | Fjöldi magasýna | Fjöldi erfðasýna | Afli (kg) |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Loðna (Mallotus villosus) | 1 | 1 | 1 | 1 | 0 | 0 | 0,01 |
| Kolmunni (Micromesistius poutassou) | 234 | 84 | 234 | 234 | 39 | 75 | 397,91 |
| Hrognkelsi (Cyclopterus lumpus) | 1 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 2,64 |
| Litla geirsíli (Arctozenus risso) | 3 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0,01 |
| Marglyttur (Scyphozoa) | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0,25 |
| Ísalaxsíld (Benthosema glaciale) | 12 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0,03 |
| Norsk-íslensk síld (Clupea harengus) | 1.255 | 246 | 249 | 249 | 50 | 249 | 1.013,10 |
| Samtals | 1.506 | 331 | 484 | 484 | 89 | 324 | 1.413,95 |
2.6 Úrvinnsla gagna
Afla- og líffræðigögn leiðangursins voru sótt úr gagnagrunni Hafrannsóknastofnunar 25. september 2026. Stöðvaupplýsingar og þurrvigt átu í ár voru lesnar úr PGNAPES-gagnaskrám leiðangursins, sondugögn úr gagnaskrám sondunnar, bergmálsgögn úr túlkunarskrám LSSS-forritsins og þurrvigt átu fyrri ára úr gagnasafni stofnunarinnar um átu. Meðalþyngd síldar eftir lengd árin 2008–2024 og dagsetningar fyrri leiðangra (Mynd 13) eru úr eldri samantektum stofnunarinnar. Töflur, myndir og tölur í texta eru unnar beint úr þessum gögnum nema annað sé tekið fram, en Mynd 1 og tölur sem vísað er til sameiginlegrar skýrslu leiðangursins (ICES 2026) eru þaðan fengnar.
3 Niðurstöður
Afli í flotvörputogum er sýndur á Mynd 3. Síld fékkst á fimm og kolmunni á fjórum af þeim níu stöðvum þar sem togað var. Heildarafli kolmunna var 397,9 kg og heildarafli síldar 1.013,1 kg (Tafla 3).
3.1 Sjórannsóknir og áta
Hiti og selta á 5, 50, 100, 200 og 400 m dýpi eru sýnd á myndum 4 og 5. Við yfirborð (5 m) var hitinn á bilinu 1,1–8,9 °C og seltan 34,7–35,3. Hlýjastur og seltumestur var sjórinn syðst á leiðangurssvæðinu, á og við Íslands-Færeyjahrygg (8,9 °C á stöð 243), þar sem Atlantssjór streymir inn í Noregshaf. Á syðstu leiðarlínunni voru skörp skil milli stöðva 243 og 244 við um 6,5°V, þar sem yfirborðshitinn féll úr 8,9 í 5,6 °C. Kaldastur og seltuminnstur var sjórinn í norðvestri (1,1 °C á stöð 267), þar sem áhrifa pólsjávar Austur-Íslandsstraumsins gætir. Á norðlægari leiðarlínunum var sjórinn hlýrri eftir því sem austar dró. Á 200 og 400 m dýpi var sjórinn kaldur víðast hvar á miðju og vestanverðu svæðinu. Á 400 m dýpi var hitinn á bilinu 0,1–5,6 °C og undir 2 °C á 17 af 24 stöðvum. Hlýrri sjór fannst á því dýpi aðeins syðst, á Íslands-Færeyjahrygg (stöðvar 241, 242 og 243), og á nyrstu leiðarlínunum (stöðvar 270, 273, 274 og 275), þar sem hitinn var mestur, 5,6 °C á stöð 273. Í sameiginlegri skýrslu leiðangursins kemur fram að sjávarhiti í efstu 200 m hafi víðast hvar í Noregshafi verið yfir langtímameðaltali og að jákvæð frávik hafi verið mest vestan til, m.a. í Íslandshafi, en norðaustur af Færeyjum hafi sjórinn verið kaldari en að meðaltali (ICES 2026). Ekki er gerður frekari samanburður við fyrri ár hér, heldur er vísað til sameiginlegu leiðangursskýrslunnar og yfirlits um umhverfisbreytingar í hafinu við Ísland (Steingrímur Jónsson og Sólveig R. Ólafsdóttir 2021).
Þurrvigt átu í efstu 200 m var að meðaltali 7,4 g m−2 á þeim 25 stöðvum þar sem háfað var og á bilinu 0,2–15,0 g m−2 (Mynd 6). Hæsta gildið mældist á stöð 263 í norðausturhluta leiðangurssvæðisins, en há gildi mældust einnig á fleiri stöðvum á sömu leiðarlínu. Meðalþurrvigtin var meiri en árið 2025 (5,9 g m−2) og sú mesta síðan 2020, þegar hún var 9,3 g m−2. Sá samanburður er þó varhugaverður, þar sem leiðangurssvæðið var annað í ár en fyrri ár (Mynd 6). Í sameiginlegri skýrslu leiðangursins kemur fram að lífmassi átu hafi aukist marktækt frá fyrra ári í vesturhlutum Noregsdjúps og Lófótdjúps en verið óbreyttur á öðrum hafsvæðum. Í Íslandshafi, þar sem lífmassinn var mestur allra hafsvæða árið 2025, var hann næstminnstur í ár (ICES 2026).
3.2 Norsk-íslensk síld
Síld fannst einkum í vesturhluta leiðangurssvæðisins, austur af Íslandi (Mynd 7). Vestan 5°V mældust 83,1% bergmálsgilda síldar og 92,7% vestan 0°. Á þremur nyrstu leiðarlínunum, norðan 67,5°N, mældist síld aðeins á einni sjómílu af 625. Þar var þó hæsta einstaka gildi leiðangursins (6.093 m2 sjm−2; 7,3% allra bergmálsgilda síldar), á 69,38°N og 1,01°A, þar sem tekið var tog á stöð 271. Hafa ber í huga að í undirsvæði 1 sigldu Jákup Sverri og Resolute einnig leiðarlínur (Mynd 1), svo að leiðarlínur RS Þórunnar Þórðardóttur sýna aðeins hluta af útbreiðslu síldar á því svæði. Í leiðangrinum í heild mældist mest af síld í suðvestur- og norðausturhluta leiðangurssvæðisins (ICES 2026).
Síld sem veiddist vestast á svæðinu var stærri en sú sem veiddist austar (Mynd 8). Meðallengd á vestustu stöðvunum (251, 253 og 258, vestan 5°V) var 32,9–34,2 cm, en 31,9 cm á stöð 245 og 30,0 cm á stöð 271. Síldin var 20–39 cm að lengd og fékkst sú minnsta (20 cm) á stöð 271.
Síld mældist frá 15 m niður á 425 m dýpi (Mynd 9) og voru samanlögð bergmálsgildi mest á 345 m dýpi. Aðeins 0,6% bergmálsgilda síldar mældust í efstu 50 m og 2,9% í efstu 100 m, en 65,8% á 200–350 m dýpi. Síldin stóð að jafnaði dýpra að degi til en að næturlagi (Mynd 10): bergmálsvegið meðaldýpi hennar var 311 m kl. 04–20 UTC en 205 m kl. 21–03 UTC, mest 364 m kl. 10 og minnst 76 m kl. 00. Sá munur ræðst þó að hluta af því hvar skipið var statt á hverjum tíma: 60,9% bergmálsgilda síldar að næturlagi mældust vestan 10°V, við landgrunnsbrún Austur-Íslands, þar sem síldin stóð einnig grynnra að degi til (233 m) en á svæðinu í heild. Kl. 21–03 UTC mældust 27,1% bergmálsgilda síldar, en á þeim tíma voru sigldar 31,4% mældra sjómílna. Án stærstu einstöku skráningarinnar (kl. 21) væri hlutfallið 21,4% og eru því ekki dregnar ályktanir af þessum gögnum um hvort síldin hafi vikið sér undan skipinu. Engin síld mældist kl. 13 og 14 UTC; á þeim tímum voru sigldar færri sjómílur en að jafnaði.
Kynþroskagreining sýndi að 98,4% síldarinnar var fullorðin vorgotssíld á kynþroskastigi 7 (nýhrygnd) eða 8 (hvíldarstig), sjá Töflu 4 og staðsetningu stöðva á Mynd 8. Síld á kynþroskastigi 3–5 (kynkirtlar að þroskast) telst vera sumargotssíld á þessum árstíma; hún var 1,6% kynþroskagreindrar síldar og fannst á þremur af fimm stöðvum (245, 258 og 271). Í maíleiðangrinum 2025 var þetta hlutfall 2,5%.1 Engin ókynþroska síld (kynþroskastig 1–2) fannst í sýnunum.
| Stöð | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|
| Kynþroskastig | 245 | 251 | 253 | 258 | 271 | Samtals |
| Óeðlilegt | 0 | |||||
| 1 | 0 | |||||
| 2 | 0 | |||||
| 3 | 1 | 1 | ||||
| 4 | 2 | 1 | 3 | |||
| 5 | 0 | |||||
| 7 | 1 | 1 | ||||
| 8 | 48 | 50 | 49 | 49 | 48 | 244 |
| Samtals | 50 | 50 | 49 | 50 | 50 | 249 |
| Ókynþroska síld (%) | 0,0 | 0,0 | 0,0 | 0,0 | 0,0 | 0,0 |
| Sumargotssíld (%) | 4,0 | 0,0 | 0,0 | 2,0 | 2,0 | 1,6 |
| Vorgotssíld (%) | 96,0 | 100,0 | 100,0 | 98,0 | 98,0 | 98,4 |
Aldursgreiningar sýndu að í togsýnum var mest af 10 ára síld (2016-árganginum; 44,3%), en næst kom 5 ára síld (2021-árgangurinn; 25,2%) og þá 6 ára síld (2020-árgangurinn; 7,7%; Tafla 5). Síld 11 ára og eldri var aðeins 6,5% aldursgreindrar síldar. Hlutföllin eru reiknuð beint úr aldursgreindum fiskum í fimm togum, óvegin með afla eða bergmálsgildum, og 28 lengdarmældar síldar voru í lengdarflokkum þar sem engin síld var aldursgreind. Í leiðangrinum í heild var 2022-árgangurinn fjölmennastur og 2021-árgangurinn mestur að lífmassa (ICES 2026), en 4 ára síld (2022-árgangurinn) var aðeins 4,9% aldursgreindrar síldar í togsýnum íslenska skipsins. Meðallengd og meðalþyngd eftir aldri eru í Töflu 6.
| Aldur (ár) | |||||||||||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| Lengd (cm) | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 19 | Samtals | % |
| 28 | 1 | 9 | 1 | 11 | 4,5 | ||||||||||
| 29 | 1 | 3 | 11 | 1 | 16 | 6,5 | |||||||||
| 30 | 7 | 23 | 30 | 12,2 | |||||||||||
| 31 | 1 | 16 | 3 | 20 | 8,1 | ||||||||||
| 32 | 1 | 5 | 1 | 2 | 2 | 2 | 13 | 5,3 | |||||||
| 33 | 2 | 8 | 1 | 5 | 14 | 30 | 12,2 | ||||||||
| 34 | 1 | 6 | 5 | 48 | 1 | 61 | 24,8 | ||||||||
| 35 | 1 | 4 | 35 | 2 | 1 | 43 | 17,5 | ||||||||
| 36 | 10 | 2 | 1 | 2 | 15 | 6,1 | |||||||||
| 37 | 2 | 1 | 1 | 4 | 1,6 | ||||||||||
| 38 | 1 | 1 | 1 | 3 | 1,2 | ||||||||||
| Samtals | 1 | 12 | 62 | 19 | 2 | 9 | 16 | 109 | 4 | 6 | 4 | 1 | 1 | 246 | 100,0 |
| % | 0,4 | 4,9 | 25,2 | 7,7 | 0,8 | 3,7 | 6,5 | 44,3 | 1,6 | 2,4 | 1,6 | 0,4 | 0,4 | ||
Meðalþyngd síldar eftir lengd var áfram lág borið saman við fyrri ár (Mynd 11) og með því minnsta sem mælst hefur frá upphafi tímaraðarinnar árið 2008. Hún var þó heldur meiri en árið 2025, en þá var meðalþyngdin sú minnsta sem mælst hefur í flestum lengdarflokkum. Lítil meðalþyngd eftir lengd gæti endurspeglað þéttleikaháð vaxtaráhrif (Stenevik o.fl. 2022), en lífmassi síldar í leiðangrinum í heild var 4,2 milljónir tonna í ár, aðeins 16% meiri en árið 2025, þegar hann var sá minnsti í tímaröðinni (ICES 2026). Aðrir þættir geta einnig skipt mál svo sem að annað skip var notað, minni flotvarpa og annað leiðangurssvæði voru notuð en áður. Þá kann samkeppni um fæðu við kolmunna og makríl, eða breytingar á magni og dreifingu fæðu, að hafa áhrif.
| Tegund | Aldur | Árgangur | Meðallengd (cm) | Meðalþyngd (g) | Fjöldi |
|---|---|---|---|---|---|
| Norsk-íslensk síld | 3 | 2023 | 29,0 | 183,9 | 1 |
| 4 | 2022 | 29,7 | 182,4 | 12 | |
| 5 | 2021 | 29,9 | 186,6 | 62 | |
| 6 | 2020 | 32,1 | 223,6 | 19 | |
| 7 | 2019 | 33,0 | 258,1 | 2 | |
| 8 | 2018 | 33,4 | 256,8 | 9 | |
| 9 | 2017 | 33,7 | 256,1 | 16 | |
| 10 | 2016 | 34,3 | 271,1 | 109 | |
| 11 | 2015 | 35,5 | 271,4 | 4 | |
| 12 | 2014 | 36,2 | 311,0 | 6 | |
| 13 | 2013 | 36,8 | 314,5 | 4 | |
| 14 | 2012 | 37,0 | 352,9 | 1 | |
| 19 | 2007 | 38,0 | 334,7 | 1 | |
| Samtals | 246 | ||||
| Kolmunni | 1 | 2025 | 19,6 | 46,0 | 25 |
| 2 | 2024 | 23,5 | 82,8 | 35 | |
| 3 | 2023 | 26,6 | 98,8 | 5 | |
| 4 | 2022 | 26,3 | 116,3 | 6 | |
| 5 | 2021 | 26,3 | 105,7 | 9 | |
| 6 | 2020 | 26,5 | 119,4 | 4 | |
| Samtals | 84 |
3.3 Kolmunni og aðrir uppsjávarfiskar
Kolmunni var algengur á leiðangurssvæðinu (Mynd 7) og í leiðangrinum í heild jókst lífmassi hans um 17% frá fyrra ári og var yfir meðaltali áranna 2008–2025 (ICES 2026). Mest var af honum á syðstu leiðarlínunni, á Íslands-Færeyjahrygg og austur af honum; sunnan 64°N mældust 62,7% bergmálsgilda kolmunna. Mestur hluti þeirra var í hlýjum Atlantssjó vestan skilanna við um 6,5°V (sjá kafla 3.1) og mældust þar 55,9% allra bergmálsgilda kolmunna, en ekkert tog var tekið á því svæði vegna veðurs. Kolmunni mældist einnig á norðar, en hæsta einstaka gildið (3.927 m2 sjm−2) var á 66,44°N og 0,60°V. Kolmunninn hélt sig dýpra en síldin, á 65–505 m dýpi, og mældust 74,4% bergmálsgilda hans neðan 300 m (Mynd 9). Bergmálsgögn ná aðeins niður á um 510 m dýpi og 5,8% bergmálsgilda kolmunna mældust á 480–510 m dýpi, svo að hluti kolmunnans hefur líklega staðið dýpra en mælt var. Bergmálsgildi kolmunna voru mun lægri að næturlagi en að degi til: 12,9% þeirra mældust kl. 21–03 UTC, en á þeim tíma voru sigldar 31,4% mældra sjómílna (Mynd 10). Þetta gæti tengst dægurfari kolmunnans eða því hvar skipið var statt á hverjum tíma, en ekki eru dregnar frekari ályktanir af því hér.
Kolmunni í togsýnum var 17–30 cm að lengd (Mynd 12). Stærstur var hann á syðstu togstöðinni (stöð 247; meðallengd 26,2 cm), þar sem hann var 2–6 ára og aðeins 20,0% fiskanna 1–2 ára, en á norðlægari stöðvunum var meðallengdin 20,5–22,6 cm. Í heild voru 1–2 ára fiskar 71,4% aldursgreindra kolmunna (Tafla 6), þ.e. úr 2024- og 2025-árgöngunum, sem einnig mældust sterkir á öllu leiðangurssvæðinu (ICES 2026). Hlutföllin eru óvegin og byggjast á fjórum togum, þar af þremur norðan 66°N, og ná ekki til kolmunnans vestan skilanna á hryggnum, þar sem mest mældist af honum. Makríll fékkst ekki í togsýnunum og aðeins ein loðna. Aðrar tegundir sem fengust í togsýnunum eru taldar upp í Töflu 3.
4 Umræður
Í ár var íslenski hluti leiðangursins farinn á RS Þórunni Þórðardóttur, en RS Árni Friðriksson hefur verið notaður í leiðangurinn undanfarin ár. Leiðangurssvæðið var einnig annað en áður. Það náði lengra til suðurs, allt suður á Íslands-Færeyjahrygg (63,2°N), en syðsta átustöðin í maíleiðöngrum Hafrannsóknastofnunar árin 2020–2025 var á 65,2°N. Hins vegar náði það ekki jafnlangt til norðurs og austurs og síðustu ár (Mynd 6). Jafnframt var notuð minni flotvarpa en áður (sjá kafla 2.5). Beinn samanburður við niðurstöður fyrri ára krefst því varúðar, einkum hvað varðar útbreiðslu og lengdar- og aldurssamsetningu í togsýnum.
Síldin var komin í fæðugöngu vestur á bóginn og fannst mest í vesturhluta leiðangurssvæðisins, austur af Íslandi. Í sameiginlegri skýrslu leiðangursins kemur fram að þetta sé algengt mynstur: eldri síld haldi sig vestar en yngri síld nær uppeldisstöðvunum í Barentshafi (ICES 2026). Jafnframt hefur hrygning stofnsins færst norðar en áður og hefur það áhrif á farleið síldarinnar í fæðugöngu (Slotte o.fl. 2025). Í eina toginu norðaustast á svæðinu (stöð 271) fékkst smærri og yngri síld en vestar; slíkt hefur oft sést áður og gæti tengst styttri gönguleið smærri síldar (Nøttestad o.fl. 1999), en ein stöð nægir ekki til að draga víðtækar ályktanir. Mat á magni síldar er ekki kynnt hér, þar sem leiðarlínur RS Þórunnar Þórðardóttur ná aðeins yfir hluta leiðangurssvæðisins. Niðurstöður allra þátttökuþjóða eru teknar saman til að fá áreiðanlegt mat fyrir hvert svæði og í heild og eru þær kynntar á vettvangi ICES (ICES 2026). Í leiðangrinum í heild var lífmassi síldar metinn 4,2 milljónir tonna, 16% meiri en árið 2025 (ICES 2026).
Í togsýnum íslenska skipsins var 2016-árgangurinn enn fjölmennastur, nú 10 ára, en 5 ára síld (2021-árgangurinn) kom þar á eftir. Í leiðangrinum í heild var 2022-árgangurinn hins vegar fjölmennastur (ICES 2026), en hann var lítið áberandi í togsýnum íslenska skipsins, enda heldur yngri síld sig jafnan austar og norðar. Meðalþyngd síldar eftir lengd var með því minnsta sem mælst hefur, bæði árið 2025 og í ár. Það gæti stafað af þéttleikaháðum vaxtaráhrifum (Stenevik o.fl. 2022), en aðrar skýringar koma einnig til greina (sjá kafla 3.2): sýni voru tekin með öðru skipi, minni flotvörpu og á öðru svæði en áður og samkeppni um fæðu við kolmunna og makríl kann einnig að hafa áhrif.
Kolmunni var algengur, einkum syðst á leiðangurssvæðinu á Íslands-Færeyjahrygg, en það svæði hefur ekki verið á yfirferðarsvæði íslenska skipsins undanfarin ár. Mikil hlutdeild 1–2 ára fisks í togsýnum er í samræmi við niðurstöður leiðangursins í heild, þar sem lífmassi kolmunna jókst um 17% frá fyrra ári og 2024- og 2025-árgangarnir mældust sterkir (ICES 2026).
Niðurstöður hita- og seltumælinga eru ekki ræddar frekar hér, heldur er vísað til sameiginlegu leiðangursskýrslunnar um samanburð við fyrri ár (ICES 2026). Lífmassi átu í Noregshafi og á aðliggjandi hafsvæðum hefur verið minni frá því um miðjan fyrsta áratug aldarinnar en áður og hefur minnkunin verið mest í Íslandshafi og vesturhluta Noregsdjúps (ICES 2026). Meðalþurrvigt átu í íslenska hlutanum var meiri í ár en árið 2025, en þar sem leiðangurssvæðið var annað en áður er sá samanburður ekki áreiðanlegur.
Síldin er enn í fæðugöngu vestur og norður á bóginn þegar leiðangurinn er farinn. Breytileiki milli ára í útbreiðslu síldar getur því endurspeglað breytileika bæði í tímasetningu göngunnar og í tímasetningu leiðangursins. Árin 2008–2025 var íslenska rannsóknaskipið við 66°N og 5°V á tímabilinu 7.–15. maí (Mynd 13). Í ár var skipið þar 5. maí, fyrr en nokkru sinni áður í tímaröðinni, og hefur tímasetningin færst heldur fyrr síðustu ár. Þá ber að hafa í huga að leiðangurssvæðið sjálft breyttist verulega í ár.
Þakkarorð
Höfundar þakka öllu leiðangursfólki og áhöfn RS Þórunnar Þórðardóttur fyrir vel unnin störf, svo og öllum sem komu að úrvinnslu og frágangi gagna að leiðangri loknum.
Heimildir
Viðauki 1: Þátttakendur í leiðangrinum í maí 2026
Rannsóknafólk
Sigurður Þór Jónsson, bergmálsmælingar
Björn Sigurðsson, tæknimaður og bergmálsmælingar
Sólrún Sigurgeirsdóttir, sýnavinnsla
Hrefna Zoëga, sýnavinnsla
Ásta Hrafnhildardóttir, sýnavinnsla
Skipstjóri
Footnotes
Reiknað úr gögnum í gagnagrunni Hafrannsóknastofnunar: 10 af 408 kynþroskagreindum síldum.↩︎